- Markhópur eða aldursbil er gagnsætt og skiljanlegt.
- Vitsmunaþroski markhóps (líkamleg og andleg færni, tilfinningar) er tekinn með í reikninginn hvað varðar innihald, hönnun/tilhögun og viðmót.
- Markhópurinn skilur efnið og þjónustuna.
- Upplýsingar fyrir foreldra eru veittar, einkum þegar markhópurinn er ung börn.
- Efni og þjónusta eru sett fram á aðlaðandi hátt fyrir markhópinn með hugvitssamlegum, gagnvirkum, nýstárlegum, skemmtandi og/eða fræðandi eiginleikum.
- Sjónrænir þættir eru vandaðir og í því tilliti er höfunda getið á réttan hátt og merkingar réttar.
- Efnið er á vel skrifuðu máli sem er villulaust og hæfir markhópnum.
- Efnið er til þess fallið að örva jákvæð samskipti á netinu og/eða á annan hátt milli jafningja og/eða innan fjölskyldunnar.
- Viðmót er notendavænt og hentar markhópnum. Notendur týnast ekki á síðunni: þeir vita alltaf hvar þeir eru.
- Vefslóðin er einföld og auðvelt er að finna vefsetrið. Innsláttarvillur munu ekki leiða börn inn á óæskilegar eða skaðlegar vefsíður með vírusum eða auglýsingum.
- Hönnun/tilhögun efnisins auðveldar notendum að vafra um það og gerir börnum kleift að rata auðveldlega um efnið/síðuna.
- Hægt er að nálgast efnið og þjónustuna úr mismunandi tækjum (vöfrum, snjallsímum og öðrum smátækjum o.s.frv.).
- Efnið og þjónustan eru ekki skaðleg einstaklingum undir lögaldri: Þar er ekki að finnasærandi eða á annan hátt skaðlegt efni (svo sem klám, efni, myndir eða hreyfimyndir sem einkennist af
kynþáttahatri, ofbeldi eða særandi/móðgandi innihaldi).
- Öðru óviðeigandi efni eða þjónustu er ekki beint að börnunum, svo sem vefsíðum sem innihalda efni sem er ekki við hæfi barna.
- Veittar eru upplýsingar um þann aðila sem dreifir efninu eða býr það til.
- Auðvelt er að finna upplýsingar um hvernig hafa má samband, svo foreldrar eða börn geti haft samband þegar vandamál koma upp.
- Þegar það á við er er lögð áhersla á að framboðið efni sé sannleikanum samkvæmt, nútímalegt og tímabært.
- Efnið brýtur ekki á hugverkarétti.
- Farið er að lögum um friðhelgi einkalífs.
- Aðeins nauðsynlegra gagna er aflað.
- Farið er með persónugögn sem trúnaðarmál. Undantekningar (t.d. í þeim tilgangi að veita verðlaun) eru gagnsæjar og skýrt er tekið fram að gögnunum verði eytt eftir á.
- Upplýsingar um ráðstafanir í tengslum við og stefnu um friðhelgi einkalífs eru auðsýnilegar og á máli sem hæfir markhópnum og foreldrunum.
- Ef unnið er úr gögnum um þá sem fara inn á síðuna skal tilkynnt um það á gagnsæjan hátt.
- Ef börn geta deilt persónuupplýsingum sínum verða þau að fá samþykki foreldra með virkum hætti.
- Boðið er upp á sérstakar reglur og öryggisupplýsingar um hvernig nota á þjónustuna sem í boði er á öruggan hátt (s.s. leiðbeiningar um netsiði, vernd persónuupplýsinga, varnir gegn neteinelti
o.s.frv.).
- Farið er fram á leyfi foreldra ef skráningar er krafist.
- Auðvelt í notkun og auðvelt að finna tilkynningaleiðir (t.d. viðvörunartakka ef börnin þurfa hjálp eða aðstoð eða að tilkynna um hugsanlega skaðlegt efni eða tengilið).
- Stöðug og virk vöktun og stýring á framlagi notenda tryggir að öllu efni sem kann að vera skaðlegt börnum sé eytt.
- Viðskiptalegir þættir, svo sem auglýsingar og vefverslun, eru aðskildir með skýrum hætti frá efninu, auðvelt er að sjá hvers eðlis þeir eru, þeir eru merktir sem slíkir og ekki óviðeigandi fyrir
aldursbil markhópsins (t.d. engar áfengis- eða tóbaksauglýsingar eða -verslun).
- Viðskiptalegir þættir hamla ekki stjórn notanda á aðgerðum.
- Fjárhæðarmörk gilda um hversu miklu börn mega eyða á síðunni eða í leiknum.
- Viðskiptaleg skilaboð/tilboð eru gefin með opnum hætti.
- Greiðsluleiðir krefjast samþykkis foreldris.